Þjónusta
~ 05.01.20 ~
Á Smiðjustíg 2 er lítil en velbúin smádýrastofa. Þar er hægt að koma með gæludýr í allar almennar skðanir, bólusetningar, örmerkingar, sárameðhöndlanir og minni aðgerðir eins og ófrjósemisaðgerðir. Dýralæknirinn hefur síðan vel búinn bíl og keyrir heim á bæi til þess að þjónusta bændur og hrossaeigendur. Við getum sinnt öllu því helsta hjá hrossum kúm og kindum, en því miður verður röntgentæki ekki til staðar fyrst um sinn. Á stofunni er líka smá verslun þar sem hægt er að nálgast allt það helsta fyrir dýrin: Gæludýrafóður Leikföng Feldhirðuvörur fyrir hesta og hunda Járnigavörur Bætiefni og vítamín fyrir flest dýr |
SmádýrastofaTökum við gæludýrum í allar daglegar skoðanir, helstu meðferðir og smærri aðgerðir
|
StórgripirDýralæknirinn keyrir í hesthús og á bæi til þess að sinna hrossum og öðrum búfénaði.
Hross geta komið í innlögn í góðu hesthúsi í Reykjadal sé þess þörf. |
NeyðarþjónustaNeyðarþjónusta fyrir bæði smádýr og stórgripi utan almenns opnunartíma.
|